top of page

Skothausar

Jul 1
2 min read

(e. shooting heads or shooting taper)

Þegar kasta þarf langt og kastgetan er að þróast má grípa til skothausa. Þá er notast við stuttan þungan haus (uþb. 30 fet að lengd). Það þarf ekki mikla kastgetu til að koma slíkum útbúnaði langar leiðir. Þetta er eins og vera með stein í snæri.


Tvö kerfi


Skothausa kerfi getur verið tvenns konar. Annars vegar eru samþættaðar skothausalínur þar sem rennilínan (e. running line) er framhald skothausins þeas. línan er einn partur (e. integrated fly line).


Samþætt lína
Samþætt lína

Hins vegar er stuttur þungur haus með lykkju á endanum sem er síðan lykkjaður við rennilínu (þetta eru því tveir partar). Með svona kerfi má vera með margs konar hausa fyrir breytilegar aðstæður. Fljótandi eða sökkvandi hausar, lengri eða styttri osfrv..



Haus og rennilína lykkjuð
Haus og rennilína lykkjuð

Þegar skothaus er kastað þá er best að hafa ekki meira en tvö fet af rennilínu utan topplykkju. Löng og létt rennilína hefur ekki massann til að ráða við þungan hausinn. Skothausar geta því hentað þar sem er þröngt um bakkast.


Kostir


Þeir sem nota skothausa gera það vegna þess að með þeim má kasta langt og fara yfir mikið vatn. Danir td. nota skothausa þegar þeir veiða sjóbirting frá strönd. Skothausar eru oft notaðir við strandveiðar í B.N.A. vegna lengdar kastanna.

Það má líka nota þá í stórum vötnum til að finna fisk. Skothausar eru einnig vel nothæfir til að snúa yfir stórum þungum flugum.


Ókostir


Samþættaðir skothausar eru framleiddir með rennilínu eins og venjulegar flugulínur og rennilínan á þeim er ekki eða sama vandamál og á öðrum línum.


Þegar kerfið er samsett úr haus og rennilínu sem lykkjað er saman þá skiptir val rennilínu miklu máli. Því grennri sem rennilínan er, því minna viðnám er í lykkjum stangarinnar og má því kasta lengra. Rennilínur hafa þann ókost að þeim mun grennri sem þær eru því verri er að handleika þær. Að „strippa” inn td. girni sem rennilínu er ekkert grín. Við þurfum að hafa rennilínu af hjólinu til taks og ekkert flækist eins rækilega og þunn rennilína.


Því þykkari sem rennilínan er því meira viðnám hefur hún sem hefur áhrif á kastlengdina sem minnkar. Hins vegar er mun betra að handfjatla rennilínuna þegar hún þykknar. Við þurfum að hafa rennilínu af hjólinu til taks og þykkari rennilína flækist ekki verulega, sérlega ef hún er teygð. Sá á kvölina sem á völina.


Þegar skothaus er notaður fer ekki mikið fyrir nákvæmni. „Strippa” þarf inn alla rennilínuna til að kasta megi á ný. Það er ekki mögulegt að vippa línunni (e. mend). Veltiköst eru einnig úr sögunni. Að endingu þá skella þessar línur niður á vatnsborð, enda þungar, og það gleður ekki fiskana.


Mín skoðun (mín blogg mínar reglur)


Ég sé ekki neina sérstaka ástæðu til að nota skothausa við vatnaveiði eða árveiði á Íslandi. Vel hannaðar línur eru líklegri til árangurs gefið að kastgeta sé til staðar.

Skothaus er miklu fremur kastkerfi en veiðikerfi. Lesa má td. um skothausa „Hin fullkomna flugulína fyrir íslenskar aðstæður” - þetta er auðvitað markaðssetning og ekkert að því. Hins vegar er líka verið að gefa í skyn að kastfærni íslenskra flugukastara sé fremur slök því það er ekkert sérstakt við íslenskar aðstæður að öðru leyti.


Comments


© 2023 by Every Jonah Has a Whale. Proudly created with Wix

bottom of page