top of page

Breyturnar í veiði á „bonefish”

Jul 30
6 min read

Yfirleitt veiðum við bonefish (albula vulpes) á grunnum sjávarflötum úr flatbytnum sem eru afar grunnristar. Veiðimaðurinn stendur fremst í bátnum, stundum á upphækkuðum kastpalli („cage“), en gædinn stendur aftast á palli fyrir ofan utanborðsvélina og ýtir bátnum áfram með löngum stjaka.


Ég vísa lesandanum í eftirfarandi tvær greinar þar sem þessi þáttur veiðanna er útskýrður nánar:



Bonefish er nokkuð erfiður viðfangs, þó ekki alveg eins slæmir og„permit (fiskur)” hvað það varðar. Fyrsta skilyrðið til að veiða þá er að koma auga á þá. Það hljómar einfalt, en reynslan sýnir að það er allt annað en auðvelt. Það tekur tíma og mikla æfingu að verða laginn í að sjá bonefish á grunnsævi.

Stundum verður maður einfaldlega að treysta gædinum þegar hann segir: „Sextíu fet, klukkan ellefu.“ Þá kastar maður þangað, jafnvel þótt maður sjái engan fisk. Þegar fiskurinn loksins tekur fluguna tekur hann ótrúlegt viðbragð og tekur út flugulínuna á augabragði og fer langt inn á undirlínu.

Gædinn stendur hátt á pallinum og sér því fiskana mun fyrr en veiðimaðurinn. Þegar hann kemur auga á fisk leiðbeinir hann þér að honum og ef allt gengur upp er fiskurinn innan kastfæris. Skipun getur hljómað svona: „Bentu stönginni... aðeins til vinstri... stopp... fjörutíu og fimm fet.“ Eftir að þú hefur svo klúðrað kastinu rækilega greinir góður gæd það sem fór úrskeiðis. „Þegar þú steigst svona þungt fram á bóginn hræddirðu fiskinn.“ Eða: „Þegar línan skall svona fast á vatnið fældirðu hann.“ Svona er þetta. Ég hef fundið upp á ótal nýjum leiðum til að gera mistök. En einstaka sinnum tekst allt fullkomlega. Þá sér fiskurinn fluguna, skoðar hana af forvitni og ákveður stundum að taka hana.

Flatbytnurnar sem notaðar eru við þessar veiðar eru afar léttar og grunnristar en það er einnig hægt að veiða bonefish vaðandi. Það er erfiðara að koma auga á fisk frá lágum sjónarhóli, en þó vel framkvæmanlegt. Stundum er vatnið orðið svo grunnt að báturinn kemst ekki lengra, þótt fiskur hafi fundist. Þá er eina leiðin að fara út úr bátnum og elta fiskinn gangandi.

Bonefish kunna vel að meta rætur mangrófa. Þeir nota ræturnar bæði sem felustað og sem leið til að flækja línuna með því að synda í gegnum þær.


Mangrófur
Mangrófur

Að eltast við bonefish

Að veiða bonefish er erfitt en um leið einstaklega spennandi. Fiskarnir taka ótrúlega hraðar rokur og eru sannir snillingar í að sleppa. Þeir skjótast inn í mangróf ræturnar, út úr þeim aftur og gera allt sem þeir geta til að vefja línunni utan um ræturnar. Það er því alls ekki sjálfgefið að landa fiski, jafnvel þótt hann hafi tekið fluguna. En einmitt fyrirhöfnin gerir veiðina heillandi.

Til þess að veiða bonefish þurfa margir hlutir að ganga upp samtímis (fullkomnun er fullt af litlum atriðum gerð vel). Fyrst þarf að koma auga á fiskinn. Síðan þarf kastið að vera nákvæmt. Flugan þarf að sökkva á réttum hraða og á réttan stað. Fiskurinn þarf að taka eftir henni á botninum, samþykkja hana sem æti og loks gleypa hana.


Til að gera þessa margbreytilegu veiði skiljanlegri hef ég skipt henni niður í nokkrar mikilvægar breytur sem allar geta ráðið úrslitum.


Breyturnar í veiði á bonefish

1. Sólin og ferill hennar

Bjart sólskin er traustasti bandamaður okkar. Þegar sólin skín varpa fiskarnir skuggum á botninn og oftast er það skugginn sem maður sér fyrst. Hann leiðir síðan augað að fiskinum sjálfum.

Best er að hafa sólina í bakið svo ekki þurfi að horfa beint í glampann af yfirborðinu. Staða sólarinnar og hvernig hún færist yfir himininn skiptir miklu máli. Gædarnir skipuleggja því leið bátsins þannig að birtan nýtist sem best. Treystu þeim. Þú réðir þá til starfsins þetta eru þeirra heimamið.

Þótt hægt sé að sjá bonefish í alskýjuðu veðri verður það mun erfiðara.


2. Skýin

Fylgstu vel með skýjunum og hvert þau stefna. Þau hafa bein áhrif á skyggnið. Ef þú stendur undir skýi en sérð sólskin yfir öðrum hluta flatarinnar, þá er einfaldlega best að færa sig þangað sem birtan er meiri.


3. Vindurinn

Vertu undir það búinn að vindurinn verði vandamál. Þú gætir þurft að kasta beint á móti stífum vindi. Vindurinn gæti einnig blásið þvert á líkamann frá hægri til vinstri og þrýst línunni að líkamanum (vont fyrir rétthenta). Stundum þarf jafnvel að kasta bakkastinu beint inn í hvassan vind og kunna réttu lausnina við því. Það gerist afar sjaldan að vindáttin sé fullkomin og vindurinn hægur. Besta ráðið sem ég get gefið er einfalt: Æfðu vind-köstin áður en þú ferð.



Línustjórnun verður sérstaklega mikilvæg í vindi. Yfirleitt má leyfa línunni að liggja lausri á þilfarinu. Best er að hún lendi í  „cockpit” hluta hans. Ef veiðifélagi er til staðar getur hann passað að línan flækist ekki. Stundum eru bátarnir með „leaning bar” (stöng til að styðja við veiðimenn) og þá er gott að láta línuna liggja á milli stanganna því þar fýkur hún síður til.

Einn daginn var vindur svo mikill að þetta dugði ekki lengur. Þá hélt ég lykkjunum í vinstri hendinni: stærstu lykkjunni um litlafingur, aðeins minni um baugfingur og þeirri minnstu um löngutöng, á svipaðan hátt og margir gera þegar þeir skjóta línu með tvíhendu.



Baz is ready
Baz is ready

4. Sjávarföllin

Þegar flæðir að mangrófunum synda bonefish inn í rótarkerfið að leita sér ætis. Þegar fellur út færa þeir sig aftur út á flötina. Því er nauðsynlegt að skilja sjávarföllin. En það nægir ekki að skoða flóðatöflu. Vindur getur bæði hindrað að sjór flæði eðlilega inn á flötina og tafið að hann renni aftur út. Þess vegna er staðarþekking ómetanleg. Gædarnir þekkja samspil vinds og sjávarfalla á sínum heimamiðum í hörgul.


5. Ferðalína og hraði fisksins

Bonefish eru sjaldnast kyrrir. Ég get ekki talið hversu oft ég taldi mig hafa komið auga á fisk sem reyndist síðan vera prik eða grein á botninum. „Hreyfist ekki – botn“ - þetta var setning sem ég heyrði aftur og aftur frá gædunum. Þegar þú sérð fisk á ferð verður þú að kasta flugunni þannig að hún lendi fyrir framan hann og nái að sökkva til botns áður en hann kemur. Til þess þarftu að meta bæði stefnu hans og hraðann sem hann syndir á. Markmiðið er að flugan nái botni áður en fiskurinn kemur að henni. Þess vegna skiptir öllu máli að flugan sé rétt þyngd miðað við dýpið.


6. Hreyfing bátsins

Ég var lengi efins þegar mér var sagt að bonefish gætu fundið fyrir hreyfingum báts í allt að sextíu feta fjarlægð. En ekki lengur. Nú veit ég að það getur dugað að rugga bátnum örlítið.

Eitt sinn missti ég jafnvægið lítillega og steig aðeins of fast niður á stefnið. Allir fiskarnir sem ég hafði verið að fylgjast með hurfu samstundis. Þetta er sem betur fer ein af þeim breytum sem við getum stjórnað. Hreyfðu þig hægt. Forðastu allan óþarfa hávaða. Best er að vera berfættur og þá finnurðu strax ef staðið er á línunni. Næst best er að vera í neoprene sokkum.


7. Umhverfið

Vertu meðvitaður um umhverfið. Mangrófur eru einstaklega duglegar að grípa flugulínur ef bakkastið kemur of nærri greinunum eða rótunum.

Þær fyrirgefa fá mistök.


Hvernig undirbýr maður sig fyrir bonefish veiðiferð?

Það er freistandi að trúa því að árangur ráðist fyrst og fremst af því að kaupa nýjustu og flottustu græjurnar. Margir eyða miklum tíma og peningum í stangir, hjól, línur og allan þann búnað sem markaðurinn hefur upp á að bjóða og gera sér vonir um að það eitt færi þeim fleiri fiska.

Þannig virkar þetta hins vegar ekki.

Flestar þeirra breyta sem ég hef lýst hér að framan eru einfaldlega utan okkar stjórnunar. Við ráðum hvorki sólinni, skýjunum, vindinum, sjávarföllunum né því hvenær fiskurinn ákveður að birtast.


Baz með'ann á
Baz með'ann á

Það sem við getum hins vegar stjórnað er:

  • Hversu vel við köstum.

  • Hversu hljóðlega og yfirvegað við hreyfum okkur í bátnum.

  • Hvort við veljum flugu sem er rétt þyngd miðað við dýpið þannig að hún nái botni áður en bonefish syndir að henni.

Af þessum þáttum er kastgetan langmikilvægust. Ég hef aldrei hitt mann sem kastar of vel.

Ég hef hins vegar hitt ótal veiðimenn sem gætu bætt köstin sín verulega með fáeinum einföldum leiðréttingum. Því miður leitast flestir við að kaupa sér betri búnað. Mun færri fjárfesta í því að verða betri kastarar. En það er einmitt þar sem mesti ávinningurinn liggur.

Gott kast er einfaldlega ekki falt.

Comments


© 2023 by Every Jonah Has a Whale. Proudly created with Wix

bottom of page